Takk fyrir frábærar undirtektir.

Kæru skólafélagar

Búið er að borga alla reikninga þökk sé ykkur  frábæru vinir.

Við lærum af þessu, því næst verður borgað alveg fyrirfram, ekki satt...

En þetta fór allt vel, og allir glaðir og......

Enn og aftur þúsund þakkir fyrir hjálpina.

Kv. Inga

PS. endilega haldið áfram að blogga.

 

 


Mikið fjör!

Hæ hæ,  það var alveg rosalega gaman að hitta ykkur öll.  Partýið hjá Sirrý á Kóngsbakka var auðvita frábært - þvílíkt  "flashback" og mikið fjör. Og auðvita höfðu sumir meira úthald en aðrir og fóru  í bænum eftir partýið.  Geri aðrir betur :-).   Ég, Maja og Sigga værum til í slaginn að minnsti kosti einu sinni á ári.

Þar sem Inga minntist ekki á upphæð - legg ég til að við byrjum að leggja inn á hana 1.000 og það strax.  Knús Hrefna Bachmann

 


Hjálp Hjálp

Hæ Hæ kæru vinir

Takk fyrir frábært kvöld, allir skemmtu sér vel og lengi......

En nú er komið að uppgjöri hjá nefndinni, og viti menn endar ná ekki alveg saman,þvímiður þá komu ekki allir sem melduðu sig(engin nöfn).  Og við búin að panta mat fyrir, þannig að það er smá tap, og við neiðumst til að hrópa á hjálp.  Þetta eru bara nokkrir þúsundkallar, og ef allir leggjast á eitt þá verður þetta ekkert mál.  Allir vinir í skóginum.

Ég vona að þið takið vel í þetta, en það er hægt að leggja inn á reikninginn sem ég gaf upp á boðskortinu.

Kær kveðja

Inga

 

 

 


Myndir

Hæhæ.. var að setja inn nokkrar myndir Cool

DSC07025

Fríða Björk


Gaman gaman

Hæ hæ öll!

Takk kærlega fyrir mig og þetta var frábært kvöld.  Hlakka mikið til næsta móts.

Ég er búin að setja inn fulltDSC06390 af myndum sem ég tók um kvöldið og vona að allir séu sáttir við myndirnar heheheh.

Hlakka til að sjá ykkur öll aftur sem allra fyrst.

Knús og kossar

Ellen Á


Frábært fjör

Hæhæ takk fyrir síðast, þetta var frábært kvöld og heilsan eftir því í gær Sick. en ég saknaði margra og nokkrir kíktu bara stutt svo maður náði ekki að spjalla við þá (já Rikki ég er að tala um þig), en samt alveg frábært kvöld. vonandi fara að koma inn fleiri myndir fljótlega.

kv.Alla

 


Takk fyrir mig

Ég vil þakka fyrir mig á föstudaginn var. Þetta var mjög skemmtilegt. Ég er farinn að hlakka til næst eftir 4 ár.

kveðja Jón Þór Ólafsson


Takk takk

Hæ og takk fyrir síðast.. Það var ofsalega gaman að hitta ykkur öll og frábært að sjá hvað þið/við höfum ekkert breyst. Halo Ég skemmti mér vel. Voru ekki einhverjir fleiri sem tóku myndir? Á eitthvað að safna þeim saman eða..?  

Kv. Fríða Björk


Við erum svo falleg og góð.......

TAKK FYRIR SÍÐAST BREIÐHOLTS FEGURÐAR MENN OG DÍSIR

ÞETTA VAR SVO GAMAN OG ÉG ER STRAX FARIN AÐ HLAKKA TIL NÆST.......HAUSVERKURINN Á LAUGARDEGINUM VAR TOTALY WORTH IT..........

SVO ER AÐ HALDA ÁFRAM AÐ BLOGA OG KANNSKI SETJA INN HEIMASÍÐUR Á LINK FYRIR FORVITNA,,,,,,
ÉG SENDI STUBBAKNÚS ,,,,,,,,FARIÐ VEL MEÐ YKKUR OG KEEP ME POSTED

PS . STRÁKAR ÞIÐ HAFIÐ EKKERT BREYST HELDUR,,,,,,,,,

KOSS FRÁ MÉR;;;;;;;Kv Soffía


Hæ hó og takk fyrir síðast.

Vil þakka ykkur sem komuð í gær kærlega fyrir frábært kvöld.

Fannst gaman að hitta alla og saknaði þeirra sem ekki komu og er mjög sáttur við kvöldið.

Datt í hug að setja inn eina góða stöku í tilefni kvöldsins.

Breiðholtsbörnin stór og smá

Ég hitti ykkur í gær

Ég segi bara vá og vá

þið eruð öll frábær

 

Endurkoma okkar er

alltaf svo frábær

Ég segi bara enn og aftur

þið eruð mér svo kær

 Datt í hug að senda nefndinni rósir fyrir þeirra framlag.

Hér eru þær

Takk fyrir frábært kvöld

P.s.

Stelpur þið hafið ekkert breyst!!!!!!!!!

Kv.

Gústi


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband