Já, það voru gömlu og góðu dagarnir.......................

Kæru skólafélagar.

Við félagarnir vorum að rifja upp gamla tíma, sem er náttúrulega ótrúleg stutt síðan. þegar við vorum í skólanum að læra og læra þvílíkur og annar eins dugnaður, maður lifandi !

Við vorum áberandi kurteisir menn og prúðir, við létum að sjálfsögðu ekkert trufla okkur við heimalærdóminn hvorki stúlkur með óbilandi gelgjuveiki eða þess blessaða "eidís væl" sem tröllreið öllu.

Það er nú annað en nú á  dögum, ekkert nema dusilmenni, þjófar og mislyndismenn. En það er ekki blessuðum börnunum að kenna, hörmungarna byrjuðu þegar konur fengu kosningarrétt og síðan snarversaði þetta þegar konur fóru að mennta sig og vinna úti og þykjast hafa vit á hlutunum. Þvílík fásinna, kallinn hann Nostradamus gat ekki einu spáð fyrir þessum hörmungum.

Konur hafa alveg gleymt sínum skyldum við barnauppeldið, vera til staðar þegar börnin koma heim úr skólanum og tala nú ekki um þegar karlinn kemur þreyttur heim úr vinnunni.

Hvar er gamla heimasmurða nestið, mjólkumiðarnir og Maggi gamli í afgreiðslunni.

Nei í stað þess datt þessum blessuðum konum öllum að "einfalda þetta" fá kokki í skólana og láta liðið í dag hætta að læra heima. Maður bara spyr , hvar endar þetta ?

Stelpur og strákar 70 módel úr bökkunum mætum 11. maí stöndum saman og breytum þjóðfélaginu aftur til hins betra.

Ungir menn með skýra framtíðarsýn. Börgvin E Björgvinsson og Sigfús Ó Höskuldsson.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Algjörir sveppir úr Breiðholtinu

Kurteisi og prúðmennska.

Stúlkur og gelgjuveiki.

Elsku Elvar og Sigfús

Annað hvort voruð þið ekki með mér í skóla eða eruð orðnir svo gamlir og ruglaðir að þið eruð að tala um einhverjar allt aðrar. Ég held að þið hafið ekki fattað konuna ennþá eða eruð þá allavegana mjög seinþroska gamlir karlar, því konan er stórkostleg þó ég segi sjálf frá. Hún nefnilega sinnir öllu barnauppeldi á heimilinu, eldar stórfenglegan mat (þó hún sé þreytt eftir langan vinnudag), þrífur húsið óaðfinnanlega, hjálpar börnunum með heimalærdóminn, fer með þau í tómstundir, borgar mötuneytið (með launum erfiði síns), lítur alltaf óaðfinnanlega út, sinnir þörfum karlsins hvenær sem honum hentar og er með skýra framtíð!

Annars hlakkar manni nú ansi mikið til að hitta ykkur þó lífið hafi nú leikið ykkur grátt.

Kv. Guffa

Algjörir sveppir úr Breiðholtinu, 5.5.2007 kl. 15:59

2 identicon

Vá hvar finnur maður svona konu ????????????

Kv.

Gústi

Ágúst Þ. (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 22:48

3 Smámynd: Algjörir sveppir úr Breiðholtinu

Strákar mínir,

við erum nú nokkuð margar sem lýsingin á við!!!!

Ótrúlegt að þið hafið ekki uppgötvað neina þeirra.

Annars held ég að þetta verði ótrúlega gaman og hlakka mikið til.

Kv. Guffa

Algjörir sveppir úr Breiðholtinu, 6.5.2007 kl. 00:48

4 Smámynd: Algjörir sveppir úr Breiðholtinu

Hæ krúttin mín ég ætla vera með ykkur í klíkunni var það ekki málið.

Þetta er nú meiri niðurgangurinn og grenjandi skemmtilegt,  erum langflottust 

Gott framtak geggjuð tilfinning hlátur og grátur  

Kv,

Sunna

Algjörir sveppir úr Breiðholtinu, 7.5.2007 kl. 13:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband